Fréttir
VLAN sambönd
Í boði eru netsambönd, Ethernet VLAN með tengipunktum á Norðurlandi, Suðurlandi, Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi og Austurlandi.

>> Fjarskiptakerfi
>> Óska eftir tilboði

Leigulínur
Fjarski býður upp á leigulínur með tryggri bandbreidd á sömu svæðum.

>> Fjarskiptakerfi
>> Óska eftir tilboði

Aðstöðuleiga
Fjarski leigir einnig út aðstöðu fyrir hýsingu á fjarskiptabúnaði og aðstöðu í möstrum fyrir loftnet víða um land og á hálendinu.

>> Fjarskiptastaðir
>> Óska eftir tilboði


Smellið á kortið til að stækka það

>|< Landsvirkjun og Fjarski endurnýja samning um fjarskiptaþjónustu.
Fjarski og Landsvirkjun endurnýja samning um fjarskiptaþjónustu
Nýlega var endurnýjaður fjarskiptasamningur Fjarska og Landsvirkjunar og er gildistími hans 5 ár. Við endurnýjun samningsins var reynsla undanfarinna ára höfð til hliðsjónar.

Í nýjum samningi eru þjónustustig og gæðamarkmið ítarlega skilgreind og samskipti þjónustusala og þjónustukaupa gerð skilvirkari en áður var.

Fjarski á og rekur fjarskiptakerfi þau sem Landvirkjun notar vegna sambandareksturs hringtengdra símstöðva- og netkerfa og annarar fjarskiptaþjónstu fyrirtækisins. Stuðst er við mismunandi þjónustustig sambanda, allt eftir mikilvægi þeirra vegna reksturs starfsstöðva Landsvirkjunar. Einnig felur samkomulagið í sér þjónustu vegna reksturs einkasímstöðva Landsvirkjunar.

Þjónustustig sambanda eru þrjú. Bronsflokkur sem ætlað er fyrir sambönd sem eru ekki mjög mikilvæg með tilliti til viðbragðstíma í bilanatilvikum og falla sambönd vegna vatnamælinga undir þann flokk. Silfurflokkur sem á við sambönd sem eru mikilvæg fyrir rekstur orkustjórnkerfisins. Dæmi um slík sambönd eru netsambönd upplýsingasviðs. Í síðasta lagi, þjónustuflokkur sem heiti Gullflokkur en í þeim flokki eru öll sambönd sem tengja orkustjórnkerfið og neyðarfjarskipti. Uppitímamarkmið vegna gullflokks eru hæst eða 99,7%.

Samningurinn kveður á um að haldnir verði samráðsfundir á ársfjórðungsfresti þar sem Fjarski kynnir árangur við rekstur fjarskiptaþjónustunnar m.a. með því að kynna uppitímatölur sambanda ásamt því að kynna þær framkvæmdir sem ráðist hefur verið í vegna fyrirbyggjandi viðhalds. Samráðsfundirnir eru einnig vettvangur viðræðna um samhæfingu fyrirhugaðar framkvæmda á sviði fjarskiptatækni innan samstæðunnar.

Að sögn Njarðar Tómasson, framkvæmdastjóra Fjarska hefur þessi samningur algera sérstöðu hvað varðar þjónustukröfur á íslenska fjarskiptamarkaðnum og til gamans má geta að samsvarandi samningar hafa verið gerðir hjá systurfyritækjum Fjarska í Evrópu, má þar nefna ESB Telecom eða Írska Fjarska.

Á myndinni eru Friðrik Sophusson, forstjóri LV og Kristján Gunnarsson, formaður stjórnar Fjarska, ásamt Nirði Tómassyni, framkvæmdastjóra Fjarska og Óskari Valtýssyni fjarskiptastjóra samstæðunnar.

>|< Guðbjörn Þór Óskarsson ráðinn tæknimaður hjá Fjarska
Guðbjörn, öðru nafni Bubbi, var ráðinn til starfa 15 ágúst. Hann mun sinna rekstri og viðhaldií í fjarskiptakerfi Fjarska. Bubbi er með víðtæka reynslu úr fjarskiptageiranum bæði hjá hinu opinbera sem og í einkageiranum. Við bjóðum hann velkominn til starfa.

>|< Landsnet og Fjarski endurnýja samning um fjarskiptaþjónustu.
Þann 21. júní s.l. skrifaði Landsnet undir langtímasamning við Fjarska um kaup á fjarskiptaþjónustu vegna stjórnunar og reksturs flutningskerfisins.

Landsnet, eins og flutningsfyrirtæki um allan heim, gerir mjög strangar kröfur til fjarskiptakerfisins sem notast er við í stjórnun flutningskerfisins og að það sé óháð almenna fjarskiptakerfinu. Fjarskipti verða sífellt mikilvægari þáttur í stjórnun raforkukerfisins og þá einkum í tengslum við varnarbúnað háspennulína.

Með samningnum er Landsneti tryggð fjarskiptaþjónusta á hagkvæmu verði sem jafnframt uppfyllir kröfur fyrirtækisins til rekstraröryggis og gæða.

Á myndinni má sjá Njörð Tómasson framkvæmdastjóra Fjarska og Þórð Guðmundsson forstjóra Landsnets að lokinni undirritun.

kv.
Njörður Tómasson, framkvæmdastjóri / general manager

>|< Starfsmenn Fjarska á CeBit 2006 í Hannover
Bergur Þórðarson og Guðmundur Daníelsson fóru sem fulltrúar Fjarska á Cebit í Hannover sem er ein stærsta alþjóðlega sýning í heimi á sviði fjarskipta-, tölvu- og netbúnaðar. Tilgangur ferðarinnar var að hitta birgja, skiptast á skoðunum og skoða það allra nýjasta á sviði fjarskipta.

>|< Guðmundur Daníelsson ráðinn tæknirekstrarstjóri Fjarska
Guðmundur var ráðinn 1. desember 2005 en hann hefur undanfarin ár starfað í Danmörku fyrir stórt alþjóðlegt fjarskiptafyrirtæki og þekkir því vel til verka innan fjarskiptageirans. Hann kemur til með að sjá um allan tæknirekstur fyrirtækisins.

>|< Kristinn Hauksson lætur af störfum hjá Fjarska
Kristinn lét af störfum 15. desember 2005 og hefur gengið til liðs við OgVodafone og eru honum færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Fjarska. Kristinn var ráðinn til fjarskiptadeildar LV 1999 og hefur undanfarið gegnt stöðu tæknirekstrarstjóra en hann var einn af þremur starfsmönnum LV sem fluttust yfir til Fjarska árið 2004.

>|< Njörður Tómasson ráðinn framkvæmdarstjóri Fjarska
Njörður starfaði áður sem markaðs og sölustjóri við hlið Magnúsar fráfarandi framkvæmdarstjóra og þekkir því vel innviði Fjarska.

>|< Kristinn, Bergur og Sigvaldi flytja til Fjarska
Þann 10.apríl 2004 fluttust 3 af starfsmönnum Landsvirkjunar til Fjarska ehf., sem er dótturfyrirtæki LV. Kristinn Hauksson, Bergur Þ. Þórðarson og Sigvaldi K. Jónsson fluttust frá Stjórnstöð við Bústaðaveg yfir til Fjarska ehf, Tangarhöfða 7, 110 Reykjavík. Fjarski hefur tekið við rekstri fjarskiptakerfis Landsvirkjunar og eru drengirnir hinir hressustu eftir flutninginn. Á vefslóðinni hér að neðan má sjá ný símanúmer og tölvupóstföng þessara nýbökuðu starfsmanna Fjarska. http://www.fjarski.is/starfsmenn.php

>|< Grunnnet Fjarska á Vestur og Norðvesturlandi eflt til muna
Starfsmenn Fjarska hafa að undanförnu unnið að eflingu á fjarskiptakerfi Fjarska á Vestur og Norðvesturlandi. Eftir uppfærsluna, styrkist fjarskiptakerfi Fjarska til muna á Vestanverðu landinu. Með stækkuninni er Fjarska gert kleyft að veita fjarskiptafyrirtækjum sem bjóða upp á virðisaukandi fjarskiptaþjónustu og öðrum sem not hafa fyrir bandbreið samönd stærri og fjölbreyttari sambönd. Uppfærslan veitir Fjarska einnig möguleika á því að setja upp varasambönd fyrir núverandi viðskiptavini á Vestur- og Norðurlandi og eykur um leið rekstraröryggi fjarskiptakerfisins til muna. Nánari upplýsingar um net Fjarska er að finna á : www.fjarski.is/fjar_kerfi.php

>|< Fjarski leggur ljósleiðara á Kárahnjúkasvæðinu
Gerður hefur verið samstarfssamningur Landsvirkjunar og Fjarska um fjarskiptaþjónustu á virkjanasvæðinu við fyrirhugaða vatnsaflsvirkjun Landsvirkjunar við Kárahnjúka. Fjarski mun byggja upp og reka ljósleiðarakerfi en Landsvirkjun og fleiri nýta sér fjarskiptaþjónustu á meðan á framkvæmdunum stendur. Settur verður upp samtengipunktur í Fljótsdal þar sem fjarskiptafyrirtæki geta tekið við samböndum eða tengst viðskiptavinum sínum uppi við Kárahnjúka í gegnum kerfi Fjarska. Nánari upplýsingar um net Fjarska er að finna á : www.fjarski.is/fjar_kerfi.php

>|< Ljósleiðari lagður til Akureyrar um Sprengisand
Fjarskiptafélagið Fjarski ehf hefur lagt ljósleiðara frá Vatnsfelli á Suðurlandi til Akureyrar. Nýr ljósleiðari til Akureyrar gjörbreytir aðstöðu Norlendinga og stóreykur framboð á bandbreidd á svæðið. Með nýjum ljósleiðara mun samkeppni í fjarskiptum aukast til mun á Norðurlandi ásamt því að leiðarinn gefur nýja möguleika á stafrænni þjónustu, svo sem stafrænu sjónvarpi, talsíma- og farsímaþjónustu ásamt annari þjónustu sem byggir á rafrænni afhendingu. Nánari upplýsingar um net Fjarska er að finna á : www.fjarski.is/fjar_kerfi.php

>|< Tengir, ný fjarskiptadreifiveita á Akureyri
Tengir hf er nýtt fjarskiptafélag sem einbeitir sér að því að byggja upp og bjóða fjarskiptatengingar með ljósleiðaratækni. Tengir mun byggja upp ljósleiðarakerfi á Akureyri og nágrenni. Upplýsingar um Fjarskiptafélagið Tengi má finna á Tengir.is (http://www.tengir.is/)

>|< Endurnýjun á fjarskiptaaðstöðu upp á Geitafelli í Þingeyjasveit
Fjarskiptahús upp á Geitafelli í Þingeyjasveit hefur verið endurbætt. Endurnýjunin gefur Fjarska möguleika á því að stækka fjarskiptakerfi sitt til Norðurs og Norðausturs og eykur áreiðanleika Fjarskiptakerfis Fjarska.

Fjarskiptaþjónusta
Starfssvið Fjarska er að útvega grunnsambönd fyrir alhliða farskipti og gagnaflutning á milli staða. Ásamt því að bjóða aðstöðu í sérútbúnum fjarskiptastöðum um land allt.
Hafa samband
Fá hringingu
Þjónustuvefur
Notandi:

Aðgangsorð:


Tangarhöfða 7 · 110 Reykjavík · Sími: 515 9700 · Netfang: fjarski@fjarski.is